top of page

Acerca de

CRANIO

Höfuðbeina -og spjaldhryggjarkerfið

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfið eru þær himnur sem umlykja miðtaugakerfið (heili og mæna) og hafa beinfestu á höfuð-beinum og spjaldhrygg. Innan þessara himna er mænuvökvinn sem nærir og ver miðtaugakerfið. Vegna taktfastrar hreyfingar mænuvökvans, sem talið er að orsakist vegna framleiðslu og frásogs hans, myndast hreyfing á þessum himnum. Þá hreyfingu er hægt að greina með snertingu hvar sem er á líkamanum. Þessi taktfasti sláttur í mænuvökvanum er u.þ.b. 6 – 12 slög á mínútu.

Vegna festinga himnanna við höfuð- og spjaldbein þjóna þessi bein mikilvægu hlutverki í umgjörð miðtaugakerfisins.  Ef spjaldbeinið situr ekki rétt í mjaðmagrindinni, eða höfuðið liggur ekki nákvæmlega rétt á liðflötum efsta hálsliðar, má búast við röngu álagi í himnunum sem umlykja mænuna. Það getur valdið áreiti á allar taugar sem liggja út úr henni og getur valdið hinum ólíkustu einkennum, hvar sem er í líkamanum, því taugarnar þjóna honum öllum.

Hið sama á við um höfuðbeinin. Höfuðkúpan er samsett úr mörgum beinum, sem eru aðskilin við fæðingu en ná síðan saman og mynda beinsaum sín á milli. Hin hefðbundna skýring er sú að við sjö ára aldur hafi beinin saumað sig saman og séu í raun orðin ein samsoðin heild. Í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð er gengið út frá því að beinsaumurinn sé í raun bandvefsliðamót sem bjóða upp á hreyfingu beinanna. Þetta er ekki mikil hreyfing en höfuðkúpan þenst samt út og dregst saman við hreyfingu mænuvökvans. Ef hins vegar einhver hindrun verður á hreyfingu höfuðbeinanna, eða það er röng afstaða á milli þeirra, hefur það áhrif á himnurnar sem liggja fyrir innan og getur aftur haft áhrif á starfsemi miðtaugakerfisins og hinar 12 tvenndir heilatauga.

Við kjöraðstæður hjá heilbrigðum einstaklingi er ekkert sem hindrar þessa hreyfingu í mænuvökvanum, þar af leiðandi er engin hindrun á milli miðtauga og úttaugakerfis. Margt sem getur þó farið úrskeiðis og myndast hindranir, og þar með erting á taugakerfið. Höfuðbein geta aflagast vegna höggs, hnakkabein getur aflagast á efsta hálslið við fæðingu en slík skekkja lagast ekki sjálfkrafa. Mikil staðbundin spenna í bandvef, vegna sjúkdóma, skurðaðgerða, höggs, streitu eða annars konar áfalla getur einnig leitt til spennu í himnunum.

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfið er lifeðlisfræðilegt kerfi, sem er tiltölulega nýlega uppgötvað. Það samanstendur af himnum sem umlykja miðtaugakerfið (heila og mænu), þeim beinum sem himnunar hafa beinfestu á (höfuðbein og spjaldhryggur) og öðrum bandvef sem tengist himnunum beint. Einnig tilheyrir þessu kerfi heila- og mænuvökvinn sem nærir og ver miðtaugakerfið, og þau kerfi sem tengjast framleiðslu og frásogi heila- og mænuvökvans.

Viltu vita meira?

Hafðu endilega samband og við veitum þér fúslega allar frekari upplýsingar.

  • Facebook
Takk fyrir skilaboðin :)
bottom of page