top of page

28-31 ágúst 2025 - VERÐ 169.900kr.

Starts Aug 28
169.900 íslenskar krónur
Eyravegur 35 - Selfoss

Course Description

Námskeið: CranioSacral Therapy (CST 2) - Annað stig Hvenær haldið: 28-31 ágúst 2025 Hvar er námskeiðið haldið?: Yogasálir Yogastúdíói, Eyravegi 35 - Selfossi Verð: 169.900kr Undanfari: CST1 Kennari: Erla Ólafsdóttir Meginatriðin sem farið er í á þessu námskeiði eru: Skekkjur í kúpubotni, andliti og munnbein. Greining á ástandi alls líkamans. Fjallað um meðhöndlun ungbarna. Kynning á vefrænni tilfinningalosun (SomatoEmotional Release ®). Hreyfingar fleygbeins, tengsl þess við andlitsbeinin og hvernig losað er um skekkjur á þessu svæði. Kennt verður að staðsetja orkumein („energy cysts “). Kenndar eru greiningar aðferðir sem samanlagt gefa mjög miklar upplýsingar um ástand líkamans. Sem undirbúningur fyrir þetta námskeið, er lestur kafla 7-15 að báðum meðtöldum í bókinni CranioSacral Theraphy eftir John Upledger og Jon Vredevoogd. Einnig kafli 3 í CranioSacral Theraphy 2: Beyond the Dura, eftir Dr. John Upledger. Mælt er með því að vera búinn að fara 75 sinnum í gegnum 10 þrepa meðferðina sem kennd er á CST1. Megintilgangur 10 þrepa meðferðarinnar er að þróa næmni sem greiningaraðferð en að sjálfsögðu er misjafnt hvað fólk er lengi að þróa hana. Að loknu þessu námskeiði er hægt að verða meðlimur í Cranio Sacral félagi Íslands. Einnig er hægt að sækja um að taka próf í „CST Techniques„, þ.e. aðferðarfræðinni í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðinni. Undanfari námskeiðsins er CST 1 námskeiðið. Greiða þarf 30.000kr. staðfestingargjald við skráningu. Greiðsluseðill með mismuni á verði námskeiðs og staðfestingargjaldi kr. 139.900kr. er svo sendur í heimabanka þátttakanda með eindaga 4 vikum áður en námskeið hefst. Hægt er að dreifa greiðslum með kreditkorti. Einnig minnum við á afláttarpakkann okkar ef gengið er frá skráningu á þremur eða fleiri námskeiðum í einu.


Upcoming Sessions


Contact Details

  • Eyravegur 35, Selfoss, Iceland


bottom of page